Tuesday, March 27, 2007
Elskulega fólk,
Þetta blogg verður að bíða betri tíma, eða jafnvel þar til rúmlega 5 maí.
Posted at 08:12 am by agnes79
Permalink
Tuesday, February 27, 2007
Góðan daginn. Í gær var einn versti dagur sem ég veit um. Við Harpa fórum til Eiríks sem er umsjónarkennarinn okkar, til að ræða við hann um ritgerðina. Jú málið var þannig að allt það sem upphaflega átti að skrifa um var komið aftur inn. Þetta þýddi að jú, um það bil 10 bls af ritgerðinni voru ónýtar. Þetta kennnir manni að ALDREI þóknast neinum. Það er góð regla.
Annnars gerðist það að það sem ég ætlaði mér að gera í haust er ekki hægt. Júbb, verð eiginlega að kenna lagadeild um það. Þetta kennir manni að vera með ALLTAF plan-b.
Fyrir utan þetta gerðist líka eitt sem má ekki tala um hér... skrifa það bara svo að þið vitið að ég er ekki að væla út af neinu.
Annars var helgin áhugaverð. Maðurinn minn átti afmæli á föstudaginn, og ekki var mikið gert annað en að fara í bíó. Enda var Embla líka hjá okkur þannig að ekki var hægt að sleikja glasið.
Við aftur á móti fórum í útskriftarveislu hjá Ásdísi. Þar var sleikt glasið , vægast sagt.
Gunnar drakk rauðvín á "tóman" maga.... Eiki var eitthvað álika , enda voru þeir allt kvöldið að taka myndir af rassinum á hvorum öðrum...hmmm, kannski maður ætti að endurskoða eitthvað. Harpa kom með stórkostlega innkomu í partýið... jú eftir að hafa drukkið frá því á föstudeginum... inn í partý um klukkan 9 ... þegar það var rétt að byrja.. þið getið rétt ímyndað ykkur.
Annars er ég bara sjálf tóm... hugsa ekkert nema um höfundarétt og það að ég þarf að skila inn ritgerð upp á 160 síður amk fyrir 15 apríl!!!!!!
Hugsið um orð mín... og lærið af reynslunni
Luv
AG
Posted at 09:35 am by agnes79
Permalink
Monday, February 12, 2007
Halló
Jú takk, var að koma heim frá UK. Ágætis ferð svona. Rosalega þétt dagskrá en fróðleg. Við fórum í sendiráðið sem var ágætt... veitt vel - sem er ávallt kostur. Daginn eftir var farið til Ealing, þar sem við fengum að kynnast mjög skemmtilegum skóla fyrir börn á aldrinum 4-7. Þar komst ég að hvað við íslendingar erum fokking vitlaus og eftir á í kennslu. 7 ára börnin þarna kunnu miklu meiri stærðfræði en 10 ára krakkar hér . Aginn var í hámarki sem er bara gott, ég held að við gerum okkur ekki grein fyrir þvi hvað hægt er að ná fram í börnum og þjálfa þau vel á unga aldri ... okkar siðferði virðist vera sú að hlífa börnum okkar fyrir lífinu og erfiðleikum og áskorunum en þessi skóli sýndi það að þetta er vel hægt án þess að það komi á einhvern hátt niður á þeim. í raun þá njóta þau sín betur.
Síðan fórum við í Westminster Abbey í alveg bilaða messu... hún var svo flott og mikill upplifun. við fengum að sitja í konungssætunum sem þýðir að drengjakórinn var í raun við hliðina á mér. Hefði ég pikkað í strákinn við hliðina á mér þá hefði kórinn örugglega eyðilagst... en annars alveg bilað þe hvað þetta var flott.
Þetta var auðvitað kirkjuferð eins og flestir vita. Sem þýðir að kirkjan borgaði fyrir flug og gistingu og svo skipulagði alveg rosa program.
Við gistum á St. Gils sem var alveg við oxford st, eða ca 2 min gangur.
Annars get ég skrifað heilan helling um þessa ferð en ætla ekki að gera það núna. Bara setja upp dagskrá svona til að fólk geti skilið hvað ég er að tala um:
Dagur 1
Sendiráðið
Dagur 2
Ealing
Barnaskóli
Einhver kirkja sem var með mjög svo róttækar aðferðir við predikun ( ekki eins hátíðlegt og við höfum þetta - heldur mjög svo skemmtilegt)
Dagur 3
Lambeth Palace
Westminster Abbey - bæði skoðunarferð og aftansöngur
Dagur 4
Verslunarferð
Queen Show - we will rock you - ég veit óskar , en þetta væri draumur fyrir þig
Dagur 5
Covent Garden - mjög áhugavert
Íslenska kirkjan í london
Þannig að þetta var þétt en ágætlega gaman miðað við að þetta væri kirkjuferð
Þar til næst - luv ja
AG
Posted at 07:26 am by agnes79
Permalink
Tuesday, February 06, 2007
Halló, langt síðan?? jamm
spurning hvort að maður eigi að skrifa eitthvað meir?
Kannski
Allavega get ég sagt að mikið hafi breyst síðan síðast
Status:
Unnusta
Stjúpa
íbúðareigandi
...alveg að klára námið??...
Var að koma frá DK
Er að fara til UK
Kannski að fara að byrja á ritgerð... skyldi Harpa koma heim
Þoli ekki landið... verðbólga alveg í rugli
Var að halda mjög svo persónulegan fyrirlestur
Held kannski áfram... fer eftir viðbrögðum
Posted at 09:35 am by agnes79
Permalink
Friday, May 12, 2006
Þetta er að verða búið............... 4 af 5
Þá kem ég sterk inn, fólk
Posted at 03:04 am by agnes79
Permalink
Friday, April 21, 2006
Já já... ég er ekkert hætt. Það er bara búið að vera brjálað að gera. Shit búin að vera á mögnuðum tónleikum og bara dót. Nú er komin próftíð og það þýðir að næstu 4 vikurnar verður crazy að gera... ekkert netdrasl eða slíkt..bara einangrun.is.
Við hjónin fórum á galdrasýningu .. átti að vera svona rokkgaldrasýning en hún var ekki bönnuð börnum og þal var ég pínu ósátt. Ekki það að þetta hafi verið áhugavert en það að súludans og alls konar kynlífdæmi í sýningunni. Strákar sem sátu fyrir framan okkur voru með símana sína að taka fullt af myndum af kynfærum konunnar... já ég veit ekki. Kannski er ég orðin svona gömul en mér fannst þetta ekki viðeigandi sýning fyrir börn.....
Annars er komið sumar... eða próf og konan fékk sumargjöf í gær. Hmm yndislegt að fá geisladisk með Lisu minni. Hún er svo yndisleg.
Þegar ég fer að vinna í sumar eða 15 maí... þá lofa ég að skrifa mikið meira en ég man í augnarblikinu ekki neitt þar sem að svo mikið hefur gerst.
Ég sakna geðveikt DK og öllum sem þar eru og ég vildi svo gjarnan fá að hitta litlu frænku en það líður að því. Svo Erna mín sem er í rassgati... shit hvað ég sakna hennar og í raun líka Ásdísar en við höfum lítið sem ekkert haft samband núna... vegna prófhelvíta.
Annars segi ég bara gleðilegt sumar og þar til næst sem verður um 15 maí býst ég við...
Luv ja
Posted at 04:38 am by agnes79
Permalink
Wednesday, March 29, 2006
Þykist vera eitthvað merkileg
Margt hefur nú gerst síðan ég skrifaði síðast!! Ég fór á geðveika tónleika með Lísu Eckdahl ( held að það sé skrifað svona ). Hún var mögnuð og með rosalega góða tónlistamenn sér við hlið...þeir gátu spilað á nánast öll hljóðfæri. Eftir tónleikana fórum við á aðra tónleika með Badda og Tobba... þeir voru mjög góðir en því miður ekki eins magnaðir og fyrri tónleikar kvöldsins. En einmitt á gauknum þetta kvöld fór mér að vera pínu íllt í hásininni minni en datt ekki í hug að það væri eitthvað þannig að nokkur staup og dans hlytu að geta lagað það eins og allt....... EN nei mín vaknaði bara daginn eftir með smá sársauka í hásin og ákvað að áður en ég færi í ammæli til Erlu þá myndi ég kíkja upp á bráðavaktina og sjá hvort að það væri mikið að gera. Þar var ekkert að gera þannig að ég í djammgallanum fékk afgreiðslu ... og viti menn, þeir settu mig í gifs!!!!! Já marrandi bólga í hásin er víst ekki góðs viti og ekki sniðugt að vera að dansa á því...úpps!!!! En svo var það versta að mínumati...jújú spautur í æð á hverjum degi , í 4 daga....neineinei...ááá. Svo var það að í gær eftir mikla bið en yndislegt fólk á bráðamóttöku þá tóku þeir gifsið af og sprautuðu síðustu lyfjunum í mig. Í dag er ég ennþá með marrandi hásin og íllt og þarf að öllum líkindum að fara til bæklunarlæknis ( því að ég er svo bækluð ). En annars nóg af skemmtilegum sjúkrasögum.
Var að pæla hvort að gardínur eiga að vera hvítar, beis eða jafnvel beinhvítar eða ??????? hvað finnst ykkur?? Nei ekki alveg strax farin í þær pælingar þó að ég fór á húsfund í gær og fékk að vita að það verða gerðar æðislegar svalir á íbúðina mína....mmmm grillpartý? jammjamm.
Skólamál eru bara venjulega í fokki...var samt að enda við að skila einu verkefni rétt áðan... held að það sé bara ágætt miðað við að það sé á ensku.
Sorrí Ásdís að þú fékkst ekki að sjá mig í gifsi .... það var ekki viljandi ..eða hvað?
Til ykkar erlendis í Dk, þá er ég búin að senda páskaegg til mömmu og þau eru merkt aftan á hver á að fá hvað.... og mamma mín ég sendi smá gjöf til að gefa þér hlýju frá Íslandi.... I luv jú. Svo fær minnsta daman í fjölskyldunni lítinn kjól en ég býst við að þið hafið fattað það....
Þar til næst ...luv ja all
Posted at 04:37 am by agnes79
Permalink
Wednesday, March 15, 2006
Sorrí að ég er eitthvað slöpp í þessum færslum. Hmmm hvað er búið að vera í gangi hjá mér?? Búin að vera að gera verkefni í skólanum.. og endalaust hvað þau hlaðast upp.. ótrulegt hvað það er lítið eftir af þessum skóla.
Annars er ég bara búin að vera á tónleikum, alveg hægri vinstri. Fór líka í leikhús með manninum mínum. Við fórum á ég er mín eigin kona. Rosalega var þetta magnað leikrit. Alveg meiriháttar að einn maður geti leikið í 3 tíma næstum stanslaust og ekki með neina hjálp, ekki skemmir fyrir að sagan er yndisleg og byggð á sönnum atburðum.
Ég fór síðan með Hörpu og co á tónleika í Tjarnabíói..... shit maður þurfti ekki nein deyfilyf eða sýruefni til að vera þarna. Þetta voru verstu tónleikar sem ég hef farið á. Við vorum að bíða eftir að hljómsveit ( sem vinur Hörpu var í ) myndi byrja og við biðum í ca 3 tíma. Síðan þegar fallega sýrukennda ruglið var búið ... nota bene þá var verið að sýna alsberan Jesú og barnamisnotkun á tjaldinu fyrir aftan... bara sýna fram á stemminguna þarna. En allavega þegar hljómsveitin átti að byrja.. þá NEI!!! var sýruhausinn búinn að skemma hljóðkerfið og hún spilaði bara ekki neitt...... við drifum okkur þá bara til Óla í partý... þar sem skemmtilegir stólar voru.. allavega fannst mér og Hörpu það.. eða kannski var það Bakkus????
Er búin að kynnast stelpunni hans Gunnars og vera í smá mömmuleik. Það er meiriháttar hvernig börn geta aðlagast að breyttum aðstæðum. Hún er yndisleg, svo sæt og skemmtileg. Get varla beðið eftir að fá að vera meiri mamma þannig séð!!!!!
Eruð þið að lesa þetta???? Karlahatarinn og manneskja sem þolir ekki börn er að skrifa eitthvað væmið....shit hvað er í gangi?
Annars að leiðindarveseni...... Það vantar þvottavél á heimilið mitt... á einhver auka eða er til að selja fyrir lítinn pening? Og svo vantar 3 herbergja íbúð...... á besta svæðinu auðvitað...... helst strax.... endilega látið mig vita með þetta mál.. bara ef þið getið.
Sorrí fólk.... héðan af mun ég standa mig betur í þessu.
PS. er auðvitað búin að kaupa miða á Hróa og verð í smá tíma lengur því það verður skírn og útskrift hjá brósum mínum... jamm DK ég er á leiðinni eins og alltaf.
Posted at 05:22 am by agnes79
Permalink
Friday, March 03, 2006
Einmitt þegar maður er búinn að plana allt, klára verkefni sem á að skila á morgun til að geta farið á djammið með litla bró og vini Samuels ...... þá kemur vesen. Jú í alla nótt var ég ælandi eins og ég ætti lífið að leysa. Ligg núna upp í sofa og horfi á bíomynd og bíð eftir að heilsan verði fín. Eru þið með einhver ráð fyrir mann??
Ekkert merkilegt að frétta nema að nett sjokk yfir því hvað skólinn er bara að verða búinn. En vá...verkjatafla farin að virka....er að sofna...heyri í ykkur
Posted at 07:27 am by agnes79
Permalink
Friday, February 24, 2006
OHHH hvað það er yndislegt að vera svona saklaus og góður. Ég var að skoða blogg hjá bekkjarfélaganum mínum og hann er með línk yfir á mig. Agnes blómabarn....hmmm yndislegt. Gott að fólk í deildinni minni er á því að ég sé saklaus laganemi. Eins gott að þeir vita í raun ekkert meir um hina stúlkuna sem á til með að brjótast fram um helgar og jafnvel fleirri daga.
Ég stefndi á það að vera ljúf og góð þessa helgi en svo virðist sem að það klikki eins og flest allar aðrar helgar. Er að fara á typpatal með Elsu í kvöld...hmm ég veit ekki hvernig það verður en eftir það er spurning að fara á Cultura eða jafnvel Dillon.... það fer eftir því hvort að ég vilji hitta manninn minn eða vera með Elsu!! Eða bara gera bæði? já örugglega þá geri ég bæði.
Var að heyra að stóri bró er að spá í að halda veislu í júní...hvað er að fólki?? heldur það að maður eigi endalaust frí? Nei er bara að grínast..vildi svo gjarnan fara þarna út og vera með þeim í veisluhöldum.
átti yndislega kvöldstund í gær............hmmmmmmmm langt síðan að það var svona huggulegt.
Var að fatta að ég eigi að skila verkefni á laugardaginn, fara í vatnaskóg á mánudaginn og fullt af svona shitti....hmm þetta reddast
Annars er ég búin að sakna þín María mín, auðvitað er ég bara að sækja um hjá sýsla til að vera nær þér...hvað annað??
luv ja hons
Posted at 08:21 am by agnes79
Permalink